|
Eitt af markmiðum Snorrastofu er að gera Reykholt að miðstöð kynningar á íslenskum bókmenntum og miðaldasagnfræði. Í þessu felst miðlun menningararfsins á víðum grundvelli og er stefnt að stofnun minjagarðs í Reykholti þar sem hugað verður að miðlun fornminja, sögu og menningar svæðisins í heild.
|